4. mars 2010 - Fundur á Akureyri
Næstkomandi laugardag verður OA fundur í AA húsinu við Strandgötu 21, kl. 16. Allir velkomnir sem vilja kynna sér málið. Þetta verður venjulegur OA fundur en í lok hans verður rætt hvort það sé grundvöllur til að stofna OA deild á Akureyri.2. mars 2010 - Afmælisfundur OA samtakanna
Fimmtudaginn 11. mars verður Afmælisfundur OA samtakanna. Fundurinn verður í húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, kl. 20 - 21:30. Á fundinum munu nokkrir OA félagar segja sögu sína. Tilvalinn fundur fyrir alla, nýliðar og aðstandendur OA félaga sérstaklega velkomnir.6. jan 2010 - OA fundir falla niður
Fundir tveggja OA deilda hafa fallið niður, annars vegar miðvikudagsdeildin í Gula húsinu, Tjarnargötu kl. 20:15 og hins vegar Skype símafundurinn sem var á fimmtudagskvöldum.17. des 2009 - OA fundur á aðfangadag
Á aðfangadag jóla (fimmtudag í næstu viku) verður OA fundur í AA-húsinu Kaplahrauni 1 í Hafnarfirði. Fundurinn byrjar kl. 12:00 og verður í stóra salnum. Heitt á könnunni og allir velkomnir.17. nóv 2009 - Aðalfundur OA samtakanna
Aðalfundur OA samtakanna verður haldinn þann 23. nóvember kl. 20 í húsi SÁÁ í Efstaleiti.Í lok fundarins verður útgáfuhátið vegna útgáfu bókarinnar "12 spor og 12 erfðavenjur OA-samtakanna".
Allir velkomnir!
14. okt 2009 - Haustráðstefna OA samtakanna
Haustráðstefna OA-samtakanna verður haldin í Vallaskóla (Sandvík), Selfossi, þann 24. október næstkomandi.Að þessu sinni verður haustrástefnan heimatilbúin og á íslensku. Ráðstefnan verður frá kl. 10 til 16:30 og aðgangseyrir er kr. 1.500. Allir OA félagar eru hvattir til að mæta! Nýliðar velkomnir!
14. okt 2009 - Breyttur fundartími miðvikudagsdeildar í Hafnarfirði
Fundartíma OA fundarins á miðvikudögum í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði hefur verið breytt. Fundurinn hefst nú kl. 19:45 í stað 20:30. Sjá nánar í fundarskránni hér á oa.is.30. sept 2009 - OA deild á Egilsstöðum
OA deild hefur verið stofnuð á Egilsstöðum. Fundir deildarinnar eru á miðvikudögum kl. 20. Allir velkomnir, nýliðar sem lengra komnir. Sjá nánar um staðsetningu í fundarskrá OA samtakanna.18. júní 2009 - OA kynningarfundur á Egilsstöðum
Þann 18. júní verður kynningarfundur á Egilsstöðum. Fundurinn verður kl. 20 og staðsetningin er Lyngás 20 (gengið inn hjá Birkitré). Allir sem hafa áhuga á að kynna sér OA samtökin hjartanlega velkomnir.2. júní 2009 - Ný deild á Höfn í Hornafirði
Stofnuð hefur verið ný OA deild á Höfn í Hornafirði. Fundir deildarinnar eru á þriðjudögum kl. 19:30 í Rauða Kross húsinu við Víkurbraut. Verið hjartanlega velkomin.15. apríl 2009 - Opinn kynningarfundur á laugardaginn
Laugardaginn 18. apríl verður kynningarfundur í Gula húsinu, Tjarnargötu 20, kl. 11:30 f.h. Þrír OA-félagar segja sögu sína og hvernig þeir fundu leið til bata frá ofáti.Fundurinn er öllum opinn - nýliðar sérstaklega velkomnir!
Kjörið tækifæri til að kynna sér hvað OA samtökin hafa upp á að bjóða.
15. apríl 2009 - Fimmtudagsdeild í Reykjavík hættir
Deildin sem hefur verið með fundi á fimmtudögum kl. 20:30 í húsi SÁÁ er hætt.20. febrúar 2009 - Afmælisfundur OA samtakanna
Mánudaginn 23. febrúar verður haldinn afmælisfundur OA samtakanna. Fundurinn verður í húsi SÁÁ samtakanna, Von, Efstaleiti 7, kl. 20.Skorum á alla OA félaga til að mæta og fagna með okkur þessum tímamótum og nýliðar eru einnig sérstaklega velkomnir. Sjá nánar hér: http://www.oa.is/afmaelisfundur09.pdf
14. febrúar 2009 - Nýr fundur í Hafnarfirði
Á miðvikudag 18. febrúar verður stofnuð
ný deild í Hafnarfirði kl. 20:30. Fundirnir verða
í Víðisstaðakirkju.
Þema fundarins er: Skuldbinding um fráhald. Deildin leggur
áherslu á að meðlimir hennar skuldbindi sig til
fráhalds. Allir hjartanlega velkomnir.
6. febrúar 2009 - Breyttur fundartími hjá sunnudagsdeild í Hafnarfirði
Fundir í sunnudagsdeildinni í Kaplahrauni 1, Hafnarfirði, verða framvegis milli kl. 9:30 og 10:30.
Þetta er AA bókarfundur. Allir alltaf velkomnir.
18. janúar 2009 - Nýir OA fundir á Hellu
Stofnuð hefur verið ný OA deild á Hellu. Fundir deildarinnar eru á mánudögum kl. 20:30 í safnaðarheimili Oddasóknar, Dynskálum 8, Hellu. Verið hjartanlega velkomin.
18. janúar 2009 - OA fundir á mánudögum
OA fundirnir sem hafa verið á mánudögum kl. 18 í Borgartúninu í Reykjavík eru fallnir niður.
18. desember 2008 - OA fundir yfir hátíðarnar
Aðfangadagur og gamlársdagur bera upp á miðvikudag og fundir miðvikudagsdeildarinnar í Reykjavík verða kl. 12:15, Tjarnargötu 20, í stað þess að vera kl. 20:15.
Jóladagur og nýársdagur ber upp á fimmtudag og fundir fimmtudagsdeildarinnar Reykjavík verða á sama tíma og vant er í SÁÁ húsinu, Efstaleiti 7.
Allir aðrir fundir verða á sínum venjulegu fundartímum.
4. desember 2008 - Jólafundur OA samtakanna
Að vera í fráhaldi yfir hátíðirnar er dásamleg gjöf. Sumir kvíða þessum tíma, en það er algjör óþarfi. OA býður upp á leið til bata alla daga ársins.
Miðvikudaginn 10. desember kl. 20:15 ætla þrír OA félagar að deila reynslu sinni, styrk og vonum um það hvernig er að vera í fráhaldi í yfir hátíðarnar og upplifa það besta sem þær hafa upp á bjóða.
Komdu og taktu öll ,,trikkin” með þér
heim og hafðu þau með þér um
jólin.
Sjá nánar með því að smella hér: http://www.oa.is/ljosogfridur.pdf
23. nóvember 2008 - Tvær nýjar OA deildir
Tvær nýjar OA deildir hafa verið stofnaðar. Önnur þeirra er á Selfossi á miðvikudögum kl. 18 og hin er í Borgartúni 6 í Reykjavík kl. 18. Sjá nánar í fundarskránni með því að smella á "allt um fundi".
Verið hjartanlega velkomin á OA fundi.
5. október 2008 - Haustráðstefna OA - DAGSKRÁIN
Árleg haustráðstefna
OA-samtakanna á Íslandi verður haldin
dagana 10. og 11. október í Von,
húsnæði SÁÁ,
Efstaleiti 7 í Reykjavík. Í
ár mun reyndur OA-félagi frá
Bandaríkjunum deila með okkur reynslu sinni af OA
leiðinni.
Föstudagur: Kl. 20-22. Opinn fundur. Gestir og
nýliðar velkomnir. ,,Spíkerinn”
segir sögu sína.
Aðgangur ókeypis, en pottur látinn ganga.
Laugardagur: Kl. 9-12 og 13-18. Fráhald
í forgang– lifað í lausninni.
,,Spíkerinn” deilir reynslu sinni, styrk og vonum
með okkur. Aðgangseyrir 2.500 kr. En ef
þú átt ekki pening, komdu samt.
Eina skilyrðið fyrirþátttöku í OA er löngun til að hætta hömulausu áti. Hægt er að skoða auglýsingu fyrir þennan viðburð hér: http://www.oa.is/HaustradstefnaOA2008.pdf.
10. september 2008 - Spíkerfundur í fimmtudagsdeild
Fimmtudaginn 18. september munu tveir erlendir OA félagar segja okkur sögu sína.
Fundurinn verður haldinn í Von, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, Reykjavík.
Húsið opnar klukkan 20:00 en fundurinn stendur frá 20:30 - 21:30
31. ágúst 2008 - Kvennaferð OA
Helgina 19. - 21. september verður farið í kvennaferð OA samtakanna. Þetta er kjörið tækifæri fyrir bæði nýliða og þær sem eru lengra komnar til að ná bústi í bata sinn. Áhugasamar skrái sig í ferðina með því að senda tölvupóst á oa@oa.is.
10. ágúst 2008 - Haustráðstefna OA
Haustráðstefna OA samtakanna er á sínum stað og að þessu sinni mun hún vera í húsnæði SÁÁ, Von, Efstaleiti 7, dagana 10. og 11. október. Hingað kemur "speaker" frá Bandaríkjunum með langa reynslu af OA samtökunum. Nánari dagskrá verður birt hér á vefnum þegar nær dregur. Þetta er kjörið tækifæri fyrir nýliða til að kynnast OA leiðinni og fyrir lengra komna að styrkja bata sinn.
13. júlí 2008 - breyttur fundartími á mánudagsfundum og föstudagsfundum
Gerðar hafa verið örlitlar breytingar á fundarskránni undanfarið. Föstudagsfundirnir eru núna kl. 17 en ekki kl. 21 og mánudagsfundirnir hefjast nú kl. 12:05 í stað þess að hefjast kl. 12:10.
14. maí 2008 - OA vinnubúðir
Laugardaginn þann 24. maí verða
OA
vinnubúðir í
Snælandsskóla. Þema
vinnubúðanna verður Bataverkfærin
og henta
þær fyrir bæði
nýliða og lengra komna.
Haldin verða átta 15 mínútna
„speak“, eitt um hvert bataverkfæri og
svo verður
unnið í smærri
hópum. Vinnubúðirnar hefjast
stundvíslega
kl. 9:00 og lýkur kl.
16:00. Hádegishlé
verður á milli klukkan 12:00 og
13:00.Aðgangur er 1000 kr. Ef þú
átt ekki fyrir því, komdu
samt.
31. mars 2008 - Skypefundir
Frá með fimmtudeginum 3. apríl
verða skypefundirnir kl. 19.30 - 20.15 að
íslenskum tíma.
Þetta er gert vegna þess að fundirnir eru
m.a.
ætlaðir fyrir Íslendinga í
útlöndum
og um síðustu helgi
kom sumartími í
Evrópu.
17. febrúar 2008 - Hátíðarfundur OA þann 25. febrúar 2008
Í tilefni af 26 ára afmæli OA
samtakanna
á Íslandi verður haldinn
hátíðarfundur mánudaginn 25.
febrúar
kl. 20:00 í Von, húsi SÁÁ
að Efstaleiti
7. Á fundinum munu þrír OA
félagar segja
frá því hvernig þeir hafa
náð bata
frá matarfíkn. Sjá
auglýsingu hér.
Allir sem hafa áhuga á að kynna
sér starf samtakanna eru hjartanlega velkomnir.
23. janúar 2008 - OA kynningarfundur fyrir konur
Kvennadeild OA ætlar að hafa sérstakan kynningarfund fyrir konur þriðjudaginn 29. janúar, kl. 18:00-19:15, í Gula húsinu, Tjarnargötu 20, 1. hæð, 101 Reykjavík. Nýliðar sérstaklega velkomnir.
22. janúar 2008 - Ný OA deild í Reykjanesbæ
Stofnuð hefur verið ný OA deild. Fundir deildarinnar eru kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum og eru í AA húsinu, Klapparstíg 7, 230 Reykjanesbæ. Allir velkomnir sem vilja kynna sér OA samtökin. Nýliðar sérstaklega velkomnir.
1. janúar 2008 - Skypefundir á íslensku
Stofnuð hefur verið ný OA deild. Fundir deildarinnar eru kl. 20:30 á fimmtudagskvöldum og eru óháðir staðsetningu. Notast er við Skypeforritið til að funda. Nánari upplýsingar er að finna í fundarskrá OA samtakanna eða hér. Fundirnir eru tilvaldir fyrir þá sem eru staddir úti á landi eða erlendis og þurfa á fundi að halda. Allir velkomnir!
21. desember 2007 - OA fundir um jólin
Tveir OA fundir falla niður um jólin hjá mánudagsdeildinni í AA húsinu í Kópavogi, annars vegar á aðfangadag kl. 18 og hinsvegar á gamlársdag kl. 18. Allir aðrir OA fundir verða á sínum stað um jólin.
19. nóvember 2007 - Ný OA deild - Hádegisfundir
Verið er að stofna nýjan OA fund mánudaginn 19. nóv kl 12 á hádegi í Gula húsinu, Tjarnagötu 20, fyrstu hæð (stóra herbergið). Áherslan verður á 12 sporin og fráhaldið og munu fundirnir heita 12 sporin og fráhaldið. Allir hjartanlega velkomnir.
28. október 2007 - Aðalfundur OA samtakanna
Aðalfundur OA samtakanna verður mánudaginn 5. nóvember kl. 20 í húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7, Reykjavík. Allir OA félagar hjartanlega velkomnir.
7. ágúst 2007 - OA fundur á mánudögum í Kópavogi
Ný deild hefur verið stofnuð í Kópavogi. Fundir deildarinnar eru kl. 18-19 í AA húsinu, Digranesvegi 12. Fundirnir eru opnir, þannig að allir sem vilja kynna sér starf OA samtakanna eru velkomnir.
29. júlí 2007 - OA ráðstefna í haust
Hin árlega ráðstefna OA
samtakanna
á Íslandi (Overeaters Anonymous)
verður haldin í safnaðarheimili Seljakirkju,
Hagaseli 40, 109
Reykjavík.
Dagskrá ráðstefnunnar er kl. 20:30
– 22:00 föstudagskvöldið 12.
október og kl. 10:00 – 15:00 laugardaginn 13.
október 2007.Til
okkar kemur OA félagi frá Baltimore í
Bandaríkjunum með margra ára
reynslu af OA leiðinni til að deila með okkur
reynslu sinni, styrk og
vonum.
Ráðstefnan er opin öllum
matarfíklum, jafnt virkum OA
félögum sem nýliðum, en
fundurinn á föstudagskvöldinu er einnig
opinn
fyrir aðstandendur og aðra sem hafa áhuga
á að kynna sér starf OA
samtakanna.
Þátttökugjald er 2.000 kr. á
laugardeginum til
að standa undir kostnaði við
ráðstefnuna, en ef þú
átt ekki pening,
komdu samt. Á föstudagskvöldinu er ekkert
þátttökugjald en potturinn
verður látinn ganga.
Þetta er kjörið tækifæri
fyrir nýliða til að kynnast OA
leiðinni og fyrir lengra komna að styrkja bata sinn.
13. júní 2007 - Ný OA deild stofnuð á Akureyri
Það stendur til að stofna
nýja deild á
Akureyri. Fundir deildarinnar eru á
þriðjudögum
kl. 21:00 og eru þeir haldnir í AA
húsinu í
Strandgötu. Stofnfundur verður þann 19.
júní næstkomandi. Allir
hjartanlega velkomnir sem vilja kynna sér
málið.
11. apríl 2007 - Ný OA deild stofnuð
Ný OA deild hefur verið stofnuð. Fundir deildarinnar verða á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 í húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7. Þema deildarinnar verður fall og bati eða "relapse & recovery" (R&R).
Allir velkomnir sem vilja kynna sér málið!3. april 2007 - Fundir um páskana og OA kvennaferð framundan
Fundir um páskana
OA fundir verða með sama móti og vant er yfir hátíðarnar, enginn fundur mun falla niður.
OA kvennaferð framundan
Farið verður á Hellnar á Snæfellsnesi helgina 27. - 29. apríl og gist á hótel Hellnum. Lagt verður af stað á föstudagskvöldinu og komið verður aftur í bæinn seinnipart sunnudags.
Skipulögð dagskrá verður yfir helgina, m.a. OA fundur, unnið með erfðavenjurnar og 10. 11. og 12.sporið. Einnig verða gönguferðir um svæðið, hugleiðsla og kvöldvaka.
Ferðin er tilvalin fyrir nýliða sem og lengra komna. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að þjappa saman hópnum, dýpka skilninginn á prógramminu og hafa gaman!
Verð fyrir gistingu tvær nætur og fullt fæði (enginn sykur og ekkert hvítt hveiti) er 10.900.
Við hvetjum sem flestar til að skrá sig!!
Hægt er að skrá sig á oa@oa.is, í símanúmerið hér fyrir neðan eða á öllum OA fundum.
Frekari upplýsingar gefur Auður í síma 6941056
12. mars 2007 - Viltu koma með á OA ráðstefnuna í Bandaríkjunum?
Mánudaginn 19. mars kl. 21 verður haldinn sérstakur undirbúningsfundur fyrir OA ráðstefnuna í Philadelphiu í Bandaríkjunum sem verður 30. ágúst til 2. september næstkomandi.Undirbúningsfundurinn verður í kjallara húsnæðis Kennarasambands Íslands, Laufásvegi 81.
Að minnsta kosti 6 OA félagar hafa ákveðið að fara á ráðstefnuna og er ætlunin að nota þennan fund til að fara yfir kostnað, gistimöguleika o.fl.
Ef þú vilt slást í hópinn eða hefur áhuga á að kynna þér málið, kíktu þá endilega á fundinn!
8. febrúar 2007 - OA ráðstefna í Bandaríkjunum
Ekki missa af ráðstefnu heimsþjónustu OA samtakanna 30. ágúst - 2. september 2007 Í Philadelphiu í Bandaríkjunum.Hringdu inn batann - Lýstu yfir frelsi frá hömlulausu áti.
Frekari upplýsingar er að finna á www.oa.orgog verða einnig birtar hér síðar. Nú þegar hafa nokkrir OA félagar ákveðið að fara og taka þátt í ráðstefnunni. Ef þú vilt slást í hópinn eða fá frekari upplýsingar, getur þú sent inn netfangið sitt á admin@oa.is án allra skuldbindinga.
20. janúar 2007 - 25 ára afmæli OA samtakanna - hátíðarfundur
Fimmtudaginn 22. febrúar verður sérstakur hátíðarfundur hjá OA. Tilefnið er 25 ára afmæli OA samtakanna á Íslandi. Fundurinn verður í nýju húsi SÁÁ samtakanna, Von, Efstaleiti 7, kl. 20.Skorum á alla OA félaga til að mæta og fagna með okkur þessum tímamótum og nýliðar eru einnig sérstaklega velkomnir.
9. janúar 2007 - OA kynningarfundur laugardagsdeildar
Laugardagsdeild OA í Reykjavík hefur ákveðið að hafa kynningarfund í stað hefðbundins fundar næstkomandi laugardag Í Gula húsinu, Tjarnargötu 20, kl. 11:30 - 12:45. Þrír til fjórir OA félagar munu segja sögu sína.Allir velkomnir sem vilja kynna sér OA samtökin og hvað þau gera. Nýliðar sérstaklega velkomnir.
21. desember 2006 - Fundir yfir jólahátíðina
Aðfangadag og gamlársdag ber nú upp á sunnudag og sunnudagsdeildin í Hafnarfirði mun vera með sína hefðbundnu sunnudags OA fundi kl. 12 að Kaplakrika 1, Hafnarfirði. Allir velkomnir.
26. nóvember 2006 - Æðruleysismessa með OA þema
25. október 2006 - OA ráðstefna í nóvember
OA ráðstefna verður haldin
í
skátaheimilinu Vífilsfelli, Bæjarbraut
7, Garðabæ að kvöldi
föstudagsins 17. nóvember og laugardaginn 18.
nóvember.
Við höfum boðið OA félaga
frá Bretlandi með margra ára reynslu af
OA leiðinni til að koma og deila með okkur
reynslu sinni, styrk og vonum.
Föstudagur 17. nóvember
19:00 húsið opnar
20:00 – 22:00 Gestur okkar segir sögu sína
Laugardagur 18.nóvember
09:00 húsið opnar
10:00 – 12:15 „Spík“
12:15 – 13:15 Hádegishlé
13:15 – 13:45 Aðalfundur OA samtakanna
14:00 – 18:00 „Spík“
Þetta er kjörið tækifæri
til að kynnast nýjum og gömlum OA
félögum. Ráðstefnan er opin
öllum matarfíklum, jafnt virkum OA
félögum sem nýliðum, en
fundurinn á föstudagskvöldinu er einnig
opinn fyrir aðstandendur og aðra sem hafa
áhuga á að kynna sér OA
samtökin.
Á föstudagskvöldinu er ekkert
þátttökugjald en potturinn verður
látinn ganga skv. 7. erfðavenjunni.
Þátttökugjald er 2.000 kr. á
laugardeginum til að standa undir
kostnaði við ráðstefnuna, en ef
þú átt ekki pening, komdu samt!
Smellið hér
til að skoða auglýsingu fyrir
ráðstefnuna á pdf-formi.
23. október 2006 - Ný OA deild á Siglufirði
Stofnuð hefur verið ný OA deild á Siglufirði. Fundir deildarinnar eru á laugardögum kl. 11 í Rauðakrosshúsinu við Lækjargötu. Allir hjartanlega velkomnir.
2. október 2006 - OA kynnt á hátíðarfundi SÁÁ
Þann 10. október næstkomandi
mun
SÁÁ standa fyrir árlegum
hátíðarfundi sínum
í
Háskólabíói. Fundurinn mun
hefjast klukkan
20, en húsið verður opnað klukkan
19. Settir
verða upp básar þar sem
líknarfélögum og samtökum
verður gefinn
kostur á að kynna starfsemi sína. OA mun
kynna
starfsemi sína í einum af þessum
básum.
7. september 2006 - OA vinnustofa
OA kvennadeildin átti 5 ára
afmæli
á árinu og að því
tilefni mun hún standa fyrir OA vinnustofu (workshop) um
trúnaðarmennsku.
Vinnustofan verður haldinn laugardaginn 16. september
næstkomandi frá klukkan 10:00 - 16:00 í
sal Seljaskóla, Kleifarseli 28. Verð 500
kr. en ef þú átt ekki peninginn komdu
samt.
Allir OA félagar hjartanlega velkomnir,
nýliðar og lengra komnir.
5. september 2006 - OA kynningarfundur Selfossi
Þann 6. september verður haldinn
kynningarfundur
á Selfossi. Fundurinn verður klukkan 20-21
í AA húsinu, Hríholti 8, Selfossi.
Þrír OA félagar munu segja
frá reynslu sinni af OA samtökunum.
Allir sem hafa áhuga á að kynna
sér starf OA samtakanna eru hjartanlega velkomnir.
4. september 2006 - OA kynningarfundur
Sunnudagsdeild OA í Hafnarfirði hefur
ákveðið að halda upp á
3ja ára afmæli deildarinnar með
því að hafa OA kynningarfund á
sunnudaginn 10. september
kl. 12-13.
Fjórir OA félagar munu segja sögu
sína og eftir það verður
opnað fyrir spurningar.
Allir velkomnir sem vilja kynna sér OA samtökin og
hvað þau gera. Nýliðar
sérstaklega velkomnir.
28. ágúst 2006 - Nýr OA vefur fer í loftið
Nú hefur nýr OA vefur loksins litið dagsins ljós. Hér er að finna allar helstu upplýsingar um OA samtökin á Íslandi. Njótið vel.
2. júlí 2006 - Speakerfundur væntanlegur?
Heyrst hefur að það verði reynt að fá erlendan speaker til að koma og segja OA félaögum sögu sína í haust. Frekari fréttir varðandi þetta munu koma hingað á OA.is um leið og fleiri upplýsingar berast.
23. apríl 2006 - Mánudagsfundir hætta
Mánudagsdeildin kl.18.15 í
Héðinshúsinu Seljavegi 2 er
hætt. Einnig nýliðamóttakan kl.
17.30.
Minnum á aðra fundi OA samtakanna sjá
hér.
Bent skal sérstaklega á að tekið
er á móti nýliðum á
miðvikudögum kl. 19.45, fimmtudögum kl. 20.30
og laugardögum kl 11.00 í Gula húsinu
Tjarnargötu 20.
3. apríl 2006 - OA speaker frá Bandaríkunum
OA félagi frá Bandaríkjunum með margra ára reynslu af OA verður speaker í sunnudagsdeildinni þann 9. apríl, kl. 12-13. Við erum staðsett í AA húsinu í Hafnafirði eða Kaplahrauni 1, gengið inn við enda húsins. Allir eru velkomnir og endilega takið gesti með.
24. febrúar - Nýr kvennafundur
Búið er að stofna nýja kvennadeild í Reykjavík. Fundir deildarinnar eru á fimmtudögum kl. 21 og eru þeir staðsettir í Gula húsinu, Tjarnargötu 20.