12 reynsluspor OA samtakanna
- Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart mat og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
- Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
- Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
- Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.
- Við játuðum misgjörðir okkar fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst.
- Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.
- Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
- Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.
- Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.
- Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust.
- Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.
- Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum hömlulausum ofætum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.
12 erfðavenjur OA samtakanna
- Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu OA-samtakanna kominn.
- Í málum deilda er aðeins einn leiðtogi, kærleiksríkur Guð eins og hann birtist í samvisku hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.
- Til þess að gerast OA-félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta hömlulausu áti.
- Sérhver OA-deild á að vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða OA-samtökin í heild.
- Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja ofætum sem enn þjást boðskap samtakanna.
- OA-deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn eða fylgi svo lausafé, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.
- Sérhver OA-deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
- Félagar í OA-samtökunum eru ætíð einungis áhugamenn, en þjónustustöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
- OA-samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau starfa fyrir.
- OA-samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.
- Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Í fjölmiðlum ættum við alltaf að gæta nafnleyndar.
- Nafnleyndin er andlegur grundvöllur allra erfðvenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.