Verkfæri batans
Verkfæri batans - hjálpa okkur til að takast á við lífið og að vinna sporin tólf
Við sem stundum tólf spora kerfi OA til
bata
frá hömlulausu ofáti, höfum
komist að því að okkur standa
mörg verkfæri til boða til að
létta okkur verkið. Við notum
þessi verkfæri - mataráætlun,
trúnaðarmannakerfi, fundi, síma, skrif,
lesefni, nafnleynd og þjónustu - reglulega, til
að hjálpa okkur að komast í
fráhald og að viðhalda
því.
Í Overeaters Anonymous (OA) skilgreinum við
fráhald sem þá "framkvæmd
að halda sig frá hömululausi
áti". Mörg okkar hafa uppgötvað
að við getum ekki haldið okkur frá
hömlulausu áti nema með
því að nota sum eða jafnvel
öll átta verkfæri batans.
Mataráætlun
Sem verkfæri hjálpar
mataráætlunin til við að halda
okkur frá hömlulausi áti. Okkar eigin
persónulega mataráætlun er
bæði leiðbeinandi fyrir allar okkar
ákvarðanir um mataræði og
jafnframt leiðarvísir um hvað,
hvenær, hvernig, hvar og hvers vegna við
borðum. Reynsla okkar er sú að
það er mikilvægt að
ræða um mataráætlunina
við trúnaðarmann eða annan OA
félaga.
Engar reglur gilda um það hvernig
mataráætlun á að vera. OA
hvorki styður, né mælir með
mataráætlun, en hver getur gert
þær fyrir sig. (Sjá bæklingana
Dignity of Choice og A Plan of Eating til frekari
upplýsinga). OA mælir með
því að þeir sem þurfa
ráðgjöf varðandi
mataræði eða næringu, leiti til
fagfólks svo sem lækna eða
næringarfræðinga. Hvert okkar
þróar sína eigin
mataráætlun sem byggist á
heiðarlegu mati á eigin reynslu. Við
lærum að þekkja hvers við
þörfnumst og hvað við
þurfum að forðast.
Þó að einstaklingsbundnar
mataráætlanir séu jafn
ólíkar og við sjálf
þá ber flestum OA félögum
saman um það að einhver
áætlun - hvort sem hún er almenn
eða nákvæm - er nauðsynleg.
Þetta verkfæri hjálpar okkur að
takast á við líkamlegan
þátt sjúkdómsins og
að ná líkamlegum bata. Með
það að leiðarljósi
náum við meiri árangri í
að fylgja tólf spora kerfi OA til bata. Við
losnum við matarþráhyggju og
öðlumst hamingjusamt, heilbrigt líf og
andlega lífsfyllingu.
Trúnaðarmannakerfi
Trúnaðarmenn eru OA félagar sem lifa,
eins og þeim frekast er unnt, eftir reyslusporunum og
erfðavenjunum tólf. Þeir eru
fúsir til þess að miðla reynslu
sinni til annarra OA félaga og hafa skuldbundið sig
til fráhalds.
Við biðjum trúnaðarmann um
að hjálpa okkur í gegnum bataferilinn
á öllum þremur sviðum;
líkamlega, tilfinningalega og andlega. Þegar
trúnaðarmenn vinna með
öðrum OA félögum og deila
með þeim reynslu, styrk og vonum,
endurnýja og styrkja þeir í
sífellu sinn eigin bata. Trúnaðarmenn
geta aðeins miðlað af sinni
persónulegu reynslu.
Kerfið okkar byggist á
aðlöðun. Veldu þér
trúnaðarmann sem hefur öðlast
það sem þú
þráir og spurðu þá
manneskju að því hvernig hún
fer að. OA félagi má vinna með
mörgum trúnaðarmönnum
samtímis og getur skipt um trúnaðarmann
að vild.
Fundir
Fundir eru samkomur þar sem tvær eða fleiri
hömlulausar ofætur koma saman og deila hver
með annarri persónulegri reynslu ásamt
þeim styrk og vonum sem þær hafa
öðlast í OA. Þótt til
séu margskonar fundir þá byggja
þeir allir á sama grunni, félagsskap
við aðrar hömlulausar ofætur. Fundir
gefa okkur tækifæri til að greina og
fá staðfestingu á sameiginlegu
vandamáli og þar deilum við með
öðrum þeim gjöfum sem OA
kerfið hefur fært okkur.
Síminn
Síminn hjálpar okkur við að deila
reynslu og styðja hvert annað á
persónulegan hátt og koma í veg fyrir
þá einangrun sem er svo algeng meðal
okkar. Mörg okkar hringja í aðra OA
félaga og trúnaðarmanninn daglega.
Það að nota símann sem
verkfæri til að biðja um hjálp og
hjálpa öðrum, er hluti af
því ferli að gefast upp og tengjast
öðru fólki. Síminn hefur einnig
þann kost að hann er yfirleitt ekki langt undan og
því tiltækur á
erfiðum stundum, þegar við erum að
takast á við erfiðar sveiflur, hvort heldur
er upp eða niður.
Skrif
Auk þess að gera skrifleg reikningsskil í
lífi okkar og gera lista yfir fólk sem
við höfum skaðað,
þá hafa flest okkar komist að
því að skrif hafa verið
ómissandi verkfæri í sporavinnunni.
Með því að koma hugsunum okkar og
tilfinningum á blað eða skrá
óþægileg atvik sjáum
við gerðir okkar og viðbrögð
á annan hátt en þegar við
hugsum um eða segjum frá þeim.
Áður voru það algengustu
viðbrögð okkar við lífinu
að leita í hömlulaust át.
Þegar við færum erfiðleikana
í letur reynist okkur auðveldara að
sjá aðstæður skýrar og
þá gengur okkur ef til vill betur að meta
hvernig við þurfum að bregðast
við.
Lesefni
Við lesum og lærum af viðurkenndum OA
bæklingum og OA bókum á borð
við Overeaters Anonymous, The Twelve Steps and Twelve
Traditions of Overeaters Anonymous og For Today. Við lesum
líka Lifeline, mánaðarrit okkar um bata.
Einnig notum við AA-bókina (Alcoholics Anonymous ),
til að skilja og styrkja enn frekar kerfi okkar til bata.
Margir OA félagar hafa fundið að daglegur
lestur þessa efnis auðveldar okkur að lifa
í sporunum tólf. OA lesefnið okkar og AA
bókin eru verkfæri sem eru alltaf til
staðar. Það gefur okkur innsæi
í matarfíknina, styrk til að takast
á við hana og von um að til sé
lausn.
Nafnleynd
Nafnleyndin, sem fjallað er um í elleftu og
tólftu erfðavenjunum, er verkfæri sem
tryggir að við setjum málefni og
markmið ofar eigin hag. Nafnleyndin veitir okkur
tjáningarfrelsi og verndar okkur gegn
slúðri. Nafnleyndin tryggir að engum, nema
okkur sjálfum, leyfist að segja frá
því að við séum
félagar í OA. Nafnleynd á vettvangi
fjölmiðla þýðir
að við látum aldrei birta myndir af okkur
þar sem andlit sjást og komum ekki fram undir
fullu nafni þegar við kynnum okkur sem
félaga í OA. Þetta verndar
bæði einstaklinginn og samtökin í
heild.
Innan OA samtakanna þýðir nafnleyndin
það að allt sem við segjum
við aðra OA félaga er
trúnaðarmál. Því sem
við heyrum á fundum höldum við
fyrir okkur. Það verður
þó að vera ljóst að
nafnleynd má ekki verða til þess
að hindra samstarf okkar innan samtakanna.
Það er ekki nafnleyndarbrot að gefa upp fullt
nafn innan OA deildarinnar eða gagnvart
þjónustueiningum samtakanna. Það
er heldur ekki brot á nafnleynd að skrifa
nöfn OA félaga, sem það vilja,
á tólfta spors lista til að afhenda
félögum sem þurfa á
hjálp að halda. Þó
verður að gæta þess að
engar persónulegar upplýsingar séu
á listanum.
Annað sjónarhorn á nafnleyndina er
að við erum öll jafningjar í
samtökunum hvort sem við erum
nýliðar eða höfum verið
lengi í OA.
Þjóðfélagsstaða okkar
skiptir engu máli í OA, innan okkar raða
er enginn öðrum merkilegri. Við hittumst
einfaldlega vegna þess að við erum
hömlulausar ofætur.
Þjónusta
Megintilgangur OA er að flytja ofætum, sem enn
þjást, boðskap samtakanna, enda er
það grundvallaratriði í allri
þjónustu. Öll
þjónusta, hversu lítil sem
hún er, sem miðar að
því að ná til einhvers sem
þjáist af matarfíkn, stuðlar
að bata okkar sjálfra. Að fara á
fundi, raða stólum, dreifa lesefni, tala við
nýliða, gera það sem
nauðsynlegt er svo að OA deildin, eða OA sem
heild, fái þrifist; allt eru þetta
leiðir til að endurgjalda það sem
okkur hefur svo örlátlega verið
gefið. Við erum hvött til að gera
það sem við getum þegar við
getum. Okkur er lofað að árangur
sporavinnunnar sé: "Heilbrigt, hamingjusamt og
árangursríkt líf."
Þjónusta stuðlar að
því að þetta loforð
rætist. Við í OA segjum: "Mín
ábyrgð felst í því
að rétta út
hjálparhönd, í anda OA samtakanna, til
allra sem eiga við sömu áráttu
að stríða og ég".