OA.is     OA logo

OA loforðið

Ég legg hönd mína í þína og saman getum við gert það sem við gátum ekki gert ein. 

Velkomin í OA

Matur getur verið stórt vandamál í lífi fólks. Við hjá OA samtökunum höfum fundið leið til þess að ná bata við matarfíkn með því að deila reynslu okkar og styðja hvert annað.

Þú ert boðin/n velkomin/n á fund hjá OA. Á fundum er algjör trúnaður, þ.e. þegar fundinum er lokið er ekki rætt um hverjir voru á fundunum eða hvað þeir sögðu þar. Það kostar ekkert að fara á fundi og þú ert velkomin/n á hvaða fund sem er á fundarskránni okkar. 

OA sjálfsprófið

Eftirfarandi spurningar gætu hjálpað þér að finna út úr því hvort þú eigir við matarfíkn að stríða.

  1. Borðar þú þegar þú ert ekki svangur/svöng?     
  2. Heldur þú áfram að borða óhóflega án þess að kunna á því skýringar?     
  3. Finnur þú til sektar og eftirsjár þegar þú hefur borðað yfir þig?     
  4. Eyðir þú miklum tíma og hugsun í mat?     
  5. Hugsar þú með ánægju og tilhökkun til þeirrar stundar þegar þú getur borðað ein/n?     
  6. Skipuleggur þú þetta leynilega át þitt fyrirfram?     
  7. Borðar þú í hófi innan um fólk; en bætir þér það upp eftir á?     
  8. Hefur þyngd þín áhrif á það hvernig þú lifir lífinu?     
  9. Hefur þú reynt megrun í viku eða lengur á þess að ná tilsettu marki?     
  10. Gremst þér það þegar aðrir segja við þig: "Sýndu nú svolítinn viljastyrk til að hætta að borða yfir þig?"     
  11. Ertu enn á þeirri skoðun, þrátt fyrir að dæmin sýni annað, að þú getir farið í megrun "..á eigin spýtur.." hvenær sem þú vilt?     
  12. Finnur þú sterka löngun til að borða mat á einhverjum tilteknum tíma sólarhringsins sem ekki er matmálstími?     
  13. Borðar þú til að flýja áhyggjur og vandræði?     
  14. Hefur þú leitað meðferðar vegna ofáts eða vanda sem tengist mat?     
  15. Valda átsiðir þínir þér eða öðrum óhamingju? 
Svaraðir þú þremur eða fleirum af þessum spurningum játandi?
Ef svo er, eru líkur á að þú sért á góðri leið með að eiga í vanda með matarfíkn (eða hömlulaust át). Við höfum komist að því að hægt er að ná bata við þessum sjúkdómi með því að stunda 12 spora kerfi OA samtakanna.
    

Er OA fyrir þig?

Aðeins þú getur fundið út úr því hvort OA sé fyrir þig. Enginn annar getur tekið þá ákvörðun fyrir þig. Við sem erum núna í OA höfum fundið leið sem hjálpar okkur að lifa án þess að borða yfir okkur. Við trúum að matarfíkn sé stigvaxandi sjúkdómur sem hægt er að ná bata frá á svipaðan hátt og hægt er að ná bata frá alkóhólisma og öðrum sjúkdómum. Mundu að það er engin skömm í því að viðurkenna að þú eigir við vandamál að stríða. Það sem skiptir mestu máli er að gera eitthvað í því.